Samfélagið

Líðan íslenskra ungmenna, óæskilegir kælimiðlar, eiturefni

Í dag fjöllum við um líðan íslenskra ungmenna, eitt af stóru málunum í samfélagsumræðunni þessi misseri. Því er stundum haldið fram geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi, lyfjanotkun of mikil og staða þessara mála mjög slæm. Á morgun verður haldinn fundur undir yfirskriftinni Heilsan okkar þar sem geðheilsa og líðan ungmenna verður til umfjöllunar. Og í dag fáum við til okkar tvo fræðimenn sem verða með erindi á þessum fundi: Urði Njarðvík prófessor við sálfræðideild og Bertrand Lót, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, til varpa ljósi á þessi mál.

Við ætlum fjalla um F-gös. Fyrir nokkrum árum voru ísskápar og kælikerfi full af freoni og öðrum óæskilegum kælimiðlum. Þetta eru gróðurhúsalofttegundir sem eru mörg þúsund sinnum öflugri en koldíoxíð. Alþjóðlegir samningar sem tóku á ósoneyðandi kælimiðlum skiluðu miklum árangri - og seinna var ákveðið ráðast líka á þessa sem geta með hnatthlýnunarmætti sínum haft skelfileg áhrif á loftslagið. Hér á landi var ráðist í skattlagningu og kvóta á innflutning og segja ástandið í kælibransanum hafi í kjölfarið gjörbreyst. Við rifjum upp ástandið árið 2019, þegar fyrst var reynt koma böndum á innflutninginn, leitum svara frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og kíkjum upp á Járnháls og ræðum stöðuna í dag við Elís H. Sigurjónsson, tæknistjóri fyrirtækisins Kælitækni.

Við fáum svo, eitraðan pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.

Frumflutt

27. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,