Samfélagið

Vímuefnaröskun, rafbílarafhlöður og vorið 1974

Í dag byrjum við þáttinn á umfjöllun um vímuefnaröskun, sem er einn alvarlegasti heilbrigðisvandinn sem við glímum við samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Röskunin er þó meðhöndlanleg og við eigum meðferðir sem virka en röskunin einkennist ekki síst af bakföllum og hindranirnar sem blasa við þeim sem sækja sér meðferð eru margar.

Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæmdastýra á áfangaheimili fyrir konur, Helena Gísladóttir, dagskrárstjóri meðferðar Krýsuvíkursamtakanna og MA-nemi í félagsráðgjöf og Sara Karlsdóttir löggiltur áfengis og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri meðferðar hjá Hlaðgerðarkoti setjast hjá okkur og ræða um félagslega stöðu einstaklinga í langtíma meðferð vegna vímuefnaröskunar.

Hvað á gera við rafhlöðuna úr rafmagnsbílnum þegar hann er hættur ganga? Rúnar Unnþórsson, prófessor í iðnaðar- og vélaverkfræði við Háskóla Íslands, leitar svara við því en búast við innan fárra ára hafi fallið til mikið af slíkum rafhlöðum sem vel gætu átt gott og farsælt framhaldslíf.

Og í lok þáttar ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kíkja við og deila með okkur gullmola úr safni Ríkisútvarpsins.

Tónlist úr þættinum:

Bridgers, Phoebe - Motion sickness.

Fleet Foxes - Battery Kinzie.

Stuðmenn - Vorið.

Frumflutt

5. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,