Samfélagið

Lofthreinsiver og niðurdæling Co2, hverfistré, stimplun og vísindaspjall

Fyrr í mánuðinum var lofthreinsiverið Mammoth sem svissneska fyrirtækið Climeworks starfrækir ræst við virkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Þar verður innan skamms hægt fanga allt 36 þúsund tonn af koltvísýringi á ári úr andrúmsloftinu sem svo er dælt niður í jörðina þar sem hann binst við berglög. Þar kemur Carbfix til skjalanna sem býr yfir tækni sem gerir það kleift. Við ætlum ræða þetta við Ólaf Elínarson samskiptastjóra Carbfix.

Í sumar útnefnir Skógræktarfélag Reykjavíkur hverfistré Reykjavíkur, í öllum tíu hverfum borgarinnar og hefur óskað eftir tilnefningum frá íbúum og áhugafólki. Við ætlum tala um trén í borgarlandinu við Auði Kjartansdóttur framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjall.

Frumflutt

22. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,