Samfélagið

Heimsókn í neyslurými og upplifun sögunnar

Í dag heimsækir Samfélagið neyslurýmið Ylju í Borgartúni. Þar getur fólk 18 ára og eldra - sem notar vímuefni í æð komið og notað lyfin sín í hreinu og öruggu umhverfi - og fengið lágþröskuldarheilsbrigðisþjónustu. Við ræðum við starfsfólk Ylju í dag um hvernig reynslan hefur verið síðan Ylja opnaði í Borgartúni síðasta sumar - og við heyrum líka í skjólstæðingi Ylju sem segir okkur frá sinni reynslu af þjónustunni.

Og síðan fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins, sem fjallar í dag um hvað það þýði upplifa söguna.

Tónlist úr þættinum:

Bon Iver - Re: Stacks.

K.óla - Vinátta okkar er blóm.

Aretha Franklin - Somewhere

Frumflutt

2. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,