Samfélagið

Vestasta grenjaskytta landsins og nýjar skordýrategundir

Í dag fjöllum við um refaveiðar. Samfélagið leggur leið sína til Patreksfjarðar, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum, ræddi við grenjaskyttu sem starfar í gamla Rauðasandshreppi, vestasta odda landsins. Hann segir tilganginn ekki vera útrýma refnum heldur halda fjölda þeirra í skefjum svo fuglalífið geti blómstrað.

Og við höldum okkur í ríki dýranna. Undanfarin ár hefur fjöldi nýrra skordýrategunda numið hér land. Við ræðum við Matthías S. Alfreðsson, skordýrafræðing á Náttúrufræðistofnun Íslands, en hann vaktar þau smádýr sem hingað berast og er sérlegur áhugamaður um skógarmítla.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,