Samfélagið

Hafvernd, Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar og íslensk bjórmenning

Á dögunum var nýjasta heimildarmynd Davids Attenborough Hafið frumsýnd á Íslandi og viðbrögðin hafa verið sterk og jákvæð. því tilefni ætla framleiðendur myndarinnar og hópur íslenskra félagssamtaka, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Háskólann í Reykjavík, halda fund um hafvernd á Íslandi á mánudaginn. Hér rétt á eftir fáum við til okkar Katrínu Oddsdóttur og Andrés Inga Jónsson, tvo af skipuleggjendum fundarins, til segja okkur meira.

Hlustendur í höfuðborginni hafa líklega tekið eftir því sumarblóm eru byrjuð birtast hér og þar í borgarlandinu. Þessi sumarblóm sem og allmörg tré, runnar og annar gróður eru langflest ræktuð í Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi. Við heimsóttum ræktunarstöðina í vikunni og fengum heyra hvernig gengur á þessum miklu annatímum hjá stöðinni við byrjun sumars.

Og í lok þáttar setjumst við niður með félögum í Bjórmenningafélagi Íslands.

Frumflutt

23. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,