Samfélagið

Elli hunda og katta, markaðsbrestur Stefáns og löggæsla án valdbeitingar

Öldrunarmálin verða okkur hugleikin í dag, við eldumst öll og það gera dýr líka. Hanna Arnórsdóttir Rodgers, dýralæknir, ætlar ræða við okkur um aldurstengda færnisskerðingu hjá hundum og köttum og hvernig eigendur geta annast þessa ferfætlinga í ellinni þá í ellinni.

Hvernig upplifa minnihlutahópar á Íslandi samskipti við lögregluna? Og getum ímyndað okkur framtíð þar sem við tryggjum öryggi fólks án valdbeitingar? Í dag höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, í samvinnu við Borgarbókasafnið. Pétur Magnússon fær til sín Armando Garcia, sem hefur rannsakað samskipti minnihlutahópa og lögreglu, til ræða um framtíð löggæslu á Íslandi.

Við fáum svo pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi um miðbik þáttar, hann ætlar fjalla um markaðsbrest.

Tónlist í þættinum:

BOB DYLAN - If Dogs Run Free (Alternate Version, New Morning).

ARETHA FRANKLIN - Freeway Of Love.

Helgi Björns og Fjallabræður - 1000 sinnum segðu (Tónaflóð 2016)

Frumflutt

31. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,