Samfélagið

Hvar eru bækurnar frá May Morris, Söfn og hamfarir, Fárviðrið 1981

Risastór bókagjöf enskrar merkiskonu, May Morris, virðist hafa horfið sporlaust - utan einnar bókar sem Brynjar Karl Óttarsson, sögukennari við Menntaskólann á Akureyri er nokkuð viss um hafi tilheyrt henni. Hann rannsakar gamlar bækur og skjöl í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri og hirslum Menntaskólans - og tímafrek yfirlegan hefur skilað nokkrum forvitnilegum uppgötvunum. Við ræðum við Brynjar Karl.

Í síðustu viku gekk aftakaveður yfir landið, veður sem kallaði á alls kyns ráðstafanir, meðal annars í innbænum á Akureyri. Á fimmtudaginn var óð ég yfir stórfljót til hitta Rögnu Gestsdóttur, starfsmann Minjasafns Akureyrar í iðnaðarsafninu á Krókeyri, sem var nær umflotið. er farið huga í auknum mæli áhrifum náttúruhamfara á söfn - og söfn farin gera ýmsar viðbragðsáætlanir og meta áhættu ekki síst eftir Tækniminjasafn Austurlands eyðilagðist í skriðuföllum á Seyðisfirði árið 2020.

Og við höldum okkur við veðurofsann því Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Rúv, ætlar rifja upp Fárviðrið svokallaða sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið árið 1981.

Tónlist í þættinum:

Breabach - Bha Mis Raoir air an arligh.

Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).

Frumflutt

10. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,