Samfélagið

Hringborð norðurslóða, 40 ára afmæli Nordjobb og götuheiti í Reykjavík

Aðalfundur þings Arctic Circle hófst í hádeginu á stóra sviðinu í Silfurbergi í Hörpu.

Yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum taka þátt og ræða þar málefni norðurslóða. Meðal þátttakenda eru ráðherrar og leiðtogar frá fjölmörgum löndum, stjórnendur vísindastofnana og alþjóðlegra fyrirtækja, auk fulltrúa loftslagssamtaka og frumbyggja á Norðurslóðum. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ræðir við okkur um viðhorf stórvelda til norðurslóða.

Nordjobb hefur í fjóra áratugi aðstoðað ungt fólk á Norðurlöndunum við finna sér starf, sækja sér nýja reynslu og upplifa það búa í öðru Norrænu landi. Elva Dögg Sigurðardóttir, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi, ætar koma til okkar og segja okkur allt um Nordjobb.

Umhverfis- og skipulagsráð hefur fallið frá götuheitinu Fífilsgata í Reykjavík og samþykkt tillögu götunafnanefndar um hún verði framlenging af götunni Hlíðarfæti. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson vakti athygli á ákvörðuninni á Facebook-reikningi sínum og kallaði hana örnefnaklám. Stefán ætlar kíkja til okkar og spjalla við okkur um götuheiti í Reykjavík.

Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.

Tónlist þáttarins:

YLJA - Á rauðum sandi

R.E.M - All they Way to Reno

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir - Dalvísa

Frumflutt

16. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,