• 00:02:39Uppgjör við World Pride í Washington D.C.
  • 00:25:28Samfélagslöggur í sókn
  • 00:46:32Mjólkurvörur og hamfarahlýnun

Samfélagið

World Pride gert upp, samfélagslöggur í sókn, mjólkurvörur og hamfarahlýnun

Mannréttindaráðstefna World Pride var haldin í síðustu viku í höfuðborg Bandaríkjanna en ráðstefnan er hluti af stærstu hinsegin viðburðarröð heims og dregur sér þátttakendur, sérfræðinga og leiðtoga alls staðar úr heiminum til ræða stöðu og framtíð mannréttinda hinsegin fólks. Fulltrúar Samtakanna 78 og Hinsegin daga tóku meðal annarra þátt í ráðstefnunni og í dag koma þeir í heimsókn til okkar - þær Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga til gera upp ráðstefnuna.

Fyrstu samfélagslögreglumennirnir á Íslandi tóku til starfa fyrir rúmum sex árum síðan. Síðan hefur verkefnið vaxið hratt og eru starfandi samfélagslöggur á flestum lögreglustöðvum landsins. Við ræðum við Unnar Þór Bjarnason, reynda samfélagslöggu, um hvernig megi skapa traust og tengsl milli lögreglunnar og almennings og hvernig lögreglan hefur stigið inn í erfið mál tengd unglingum og ungu fólki.

Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um loftslagsbreytingar og mjólkurvörur.

Tónlist í þættinum:

Japanese Breakfast - Slide Tackle

Suki Waterhouse - Supersad

Frumflutt

11. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,