Samfélagið

Átak UN Women gegn kynbundnu, stafrænu ofbeldi og þættir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár, þegar 30 ár eru liðin frá undirritun Peking-sáttmálans, er athyglinni beint stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sara McMahon, kynningarstjóri UN Women á Íslandi, settist niður með mér í morgun og ræddi við mig um stöðuna, áhyggjuefnin og framtíðina.

Síðustu helgi hóf þáttaröð göngu sína á Rás 1 sem heitir Fatlist í þáttunum fjalla Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum og kafa ofan í sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Í seinni hluta þáttar ætla Kolbrún Dögg og Heiða Vigdís setjast hjá okkur og segja okkur meira um Fatlist en byrjum á alþjóðlegri herferð UN Women.

Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.

Tónlist þáttarins:

Marvin Gaye - Yesterday

Frumflutt

9. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,