Samfélagið

Hugsandi kennslustofur, Ný rannsókn á maíhitabylgjunni, glæsiskipið Gullfoss

Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til læra nýstárlega aðferð til kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur, lektor í stærðfræði við Háskóla Íslands - og Samfélagið kíkti við til heyra meira.

Hitabylgjan sem reið yfir Ísland og Grænland í maí var öfgafull og hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum. Veðurmet féllu á langflestum veðurstöðvum hér á landi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir aukna tíðni öfgaveðurs sem á einungis geta skollið á á hundrað ára fresti benda til þess veðurtölfræðin öll breytast.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur svo til okkar í lok þáttar - og rifjar upp glæsilegan aðbúnað í hinu sögufræga millilandaskipi Gullfossi.

Tónlist í þættinum:

Berry Chuck - School day (Ring Ring Goes the BellI)

Reverend and the makers - Heatwave in the cold north

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,