Samfélagið

Mývatnsrannsóknir, loftslagskvíði og náttúruhugvísindi

Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski segja þessi ráðstefna uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró.

Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar fjalla um loftslagskvíða.

Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi.

Tónlist úr þættinum:

ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus.

Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað.

Dina Ögon - Oas.

Frumflutt

17. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,