Samfélagið

Sýndarsjúklingar og fitusöfnun eftir miðjan aldur

Í dag verður nýtt færni- og hermisetur Háskóla Íslands og Landspítala opnað formlega. Setrið er í hálfgert æfingasjúkrahús þar sem nemendur og starfsfólk spítalans geta æft sig sinna sýndarsjúklingum sem geta farið í hjartastopp, svitnað, blánað og veikst af öllum mögulegum sjúkdómum. Við kíktum í heimsókn í HERMÍS í Eirbergi á Landspítalasvæðinu og skoðuðum setrið ásamt Þorsteini Jónssyni forstöðumanni og Hrund Thorsteinsson deildarstjóra menntadeildar Landspítalans.

Edda Olgudóttir vísindamiðlari fjallar um fitusöfnun eftir miðjan aldur.

Tónlist í þættinum í dag:

Spalding, Esperanza - Let her.

Laufey - Falling Behind.

Frumflutt

30. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,