• 00:02:39Úttekt á regnhlífanotkun
  • 00:31:02Gerir Google út af við fréttamiðla
  • 00:51:23Pistill frá Esther Jónsdóttur

Samfélagið

Úttekt á regnhlífanotkun. Gerir Google út af við fréttamiðla? Pistill um hafið

Þjóðhátíðardagurinn er handan við hornið, eða helgina og viti menn - þá er spáð rigningu um mest allt land enda ekki almennilegur 17. júní nema það rigni og helst duglega. Til búa landsmenn undir hæhó og jibbý jei ákvað Samfélagið ráðast í rannsókn á regnhlífanotkun á Íslandi fyrr og - og spyrja: Eru regnhlífar gagnlegar eða ef til vill algerlega gagnslausar á Íslandi? Hvers vegna ráðum við túristum eindregið frá því pakka regnhlífum fyrir Íslandsferðina?

Nýlegar breytingar á Google-leitarvélinni sem færa notendum svör samin af gervigreind hafa orðið til þess netumferð á fréttamiðla hefur snarminnkað. En munu tæknirisar endanlega gera út af við fréttamiðla? Í dag veltum við þessari spurningu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins.

Pistill frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins - hún hefur undanfarið verið með hugann við hafið og pistill dagsins endurspeglar það.

Tónlist í þættinum:

SPILVERK ÞJÓÐANNA, SPILVERK ÞJÓÐANNA - Skýin.

MASSIVE ATTACK - Teardrop.

RIHANNA - Umbrella.

THE WEATHER GIRLS - It´s Raining Men.

Franklin, Aretha - My guy.

O-Shen - Siasi.

Frumflutt

13. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,