• 00:02:37Götuljósmyndun
  • 00:27:25FÁGUN

Samfélagið

Rúnar götuljósmyndari, baráttan fyrir afglæpavæðingu heimabruggs

Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er einn fárra sem stundað hefur götuljósmyndun á Íslandi - raunar hefur hann myndað mannlífið í 65 ár. Við hittum Rúnar á Lækjartorgi og ræðum við hann um götuljósmyndun, mannlífið í miðborg Reykjavíkur í áranna rás og hvort tíminn mögulega bara einhvers konar blekking.

Félag áhugafólks um gerjun eða FÁGUN er stofnað utan um áhugamál sem er í raun og veru ólöglegt á Íslandi: heimabrugg. Engu síður er starfsemi félagsins blómleg og félagarnir talsvert margir. Í dag heimsækjum við FÁGUN, fræðumst um starfsemina og heyrum meira um bjórbrugg, bjórmenningu og baráttuna fyrir afglæpavæðingu heimabruggs.

Tónlist í þættinum:

Sylvan Esso - Die young

Júníus Meyvant og KK - Skýjaglópur

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,