• 00:02:40Strandlengja Íslands hreinsuð
  • 00:24:06Barist gegn ofbeldi í 35 ár
  • 00:45:35Tilvistarkrísa kóalabjarna

Samfélagið

Strandlengja Íslands, barátta gegn ofbeldi og tilvistarkrísa kóalabjarna

Strandlengja Íslands er 5000 kílómetrar lengd og stjórnvöld hafa síðastliðin fjögur ár unnið því hreinsa hana með markvissum hætti. Fyrirtækjum og félagasamtökum býðst sækja um styrk til þess taka sér ákveðinn hluta strandlengjunnar, ganga fjörur og tína netadræsur og annað plastrusl. Átakið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum og er lokaár þess runnið upp. Hvernig hefur gengið? Við ætlum ræða það við Sóleyju Bjarnadóttur, sérfræðing í Teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Í dag halda Stígamót upp á 35 ára afmæli, og af því tilefni er ýmislegt spennandi á döfinni: málþing, bíósýningar og ýmislegt fleira. Í dag förum við aðeins yfir þriggja og hálfs áratuga baráttu Stígamóta gegn ofbeldi, hugum jafnvel framtíðinni í þeim málum, og fáum til okkar Drífu Snædal, talskonu Stígamóta, og Parísi Önnu Bergmann, unga baráttukonu gegn ofbeldi.

Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Þar verða krúttleg dýr í fyrirrúmi, krúttleg dýr í krísu.

Frumflutt

5. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,