Síðdegisútvarpið

Óvissa um framtíð Markar, gagnrýni á Kennarasambandið og spjall við íbúa í Vestmannaeyjum og Norðurþingi

Gróðrarstöðin Mörk hefur starfað í Fossvogsdalnum í um 60 ár. stefnir í starfsemin víki fyrir uppbyggingu aðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Víking. Mikil viðbrögð hafa orðið hjá velunnurum stöðvarinnar og settur hefur verið í loftið undirskriftalisti henni til stuðnings. Þar er skorað á Reykjavíkurborg falla frá áformum sínum um hrekja fyrirtækið úr Stjörnugrófinni. Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur og eigandi Markar, kom til okkar.

Á dögunum var haldin Vörumessa Ungra frumkvöðla í Smáralind. Á Vörumessunni kynntu um 620 nemendur frá 18 framhaldskólum nýsköpun sína. Meðal þeirra voru þrír eldhugar. Verkefni þeirra snérist um nýta þorskroð, sem annars væri hent, og þróa það í stökkt og próteinríkt snakk. Þremenningarnir hlutu verðlaunin fyrir vöruna sem þau kalla HafBit og hlutu titilinn „besti sjó-bissnessinn“. Þau Deimantas Zelvys, Guðrún Rós Bjarnadóttir og Vilhelm Ari Hólmarsson sögðu okkur af verkefninu.

Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld. Oddvitar listanna í Vestmannaeyjum annars vegar og Norðurþingi hins vegar mætast bæði á Rás 2 og Rúv 2. Venju samkvæmt heyrðum við í íbúum sveitarfélaganna en á línunni voru Sólrún Erla Gunnarsdóttir félagsráðgjafi frá Vestmannaeyjum og Örlygur Hnefill Örlygsson frá Húsavík.

Hernám bandamanna á Íslandi stóran hluta síðari heimsstyrjaldarinnar, fyrst og fremst til verjast hugsanlegri innrás Þjóðverja, hefur verið ítarlega skrásett. En stundum erum við með minjar frá þeim tíma fyrir framan nefið á okkur án þess átta okkur á því. Í Fossvogskirkjugarði eru t.d. um 199 grafir sem geyma breska hermenn. Gísli Jökull Gíslason, leiðsögumaður, býður uppá fræðagöngu um Fossvogskirkjugarð á föstudag en 8. maí er lokum seinni heimstyrjaldarinnar 1945 fagnað víða. Gísli kom til okkar.

Djúp gjá hefur myndast á milli þeirra sem auglýsa sig sem málsvara íslenskrar menntunar og þeirra sem starfa á gólfinu. Þetta er mat Andra Þorvarðarsonar framhaldsskólakennara. Í harðorðri grein sem hann ritaði á Vísi í gær segir hann yfirhylmingu menntaforystunnar á vanköntum skólakerfisins farin valda gífurlegu tjóni. Við ræddum við Andra um málið.

Birt

6. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,