Síðdegisútvarpið

Fangelsismál,almyrkvi,úrslitastund í Síkinu og hola í höggi í DC

Síðdegisútvarpið 21. maí

Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu sem verður þann 12. ágúst á næsta ári er þegar hafinn og hafa stærstu sveitarfélögin þar sem almyrkvinn mun ganga yfir skipað stýrihóp til gera ráðstafanir fyrir stóra deginum. Í dag er sagt frá því á Vísi Ísland uppselt á þessum tíma á næsta ári. Sævar Helgi Bragason ræddi þetta við okkur en hann heldur úti sérstakri vefsíðu um almyrkvann og hefur örugglega ekki hugsað um neitt annað síðustu árin. Hann segir okkur betur af þessum merkisatburði og hvernig við getum undirbúið okkur sem best við sem verðum á landinu á þessum tíma.

Á morgun verður því velt upp hvað hafi breyst í fangelsismálum sl. tuttugu ár en þá verður haldið málþing í tilefni tímamótanna. Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu félags fanga en hann er líka umfjöllunarefni í heimildar mynd frá árinu 2003 sem tekin var upp á Litla –Hrauni og hefur aldrei áður verið sýnd opinberlega. Guðmundur Ingi ræddi við okkur.

Samhjálp leitar nýju húsnæði en leigusamningi vegna húsnæðis kaffistofunnar hefur verið sagt upp. Kaffistofan þarf flytja fyrir 1. október. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar var á línunni hjá okkur og við spurðum hana út í hvað framundan.

Það ræðst í kvöld hvort Tindastóll eða Stjarnan hampar Íslandsmeistaratitli karla í körfubolta. Oddaleikur liðanna fer fram í Síkinu á Sauðárkróki en heimaliðin hafa unnið sína leiki hingað, staðan er 2-2 en þrjá leiki þarf til hreppa titilinn. Við ætlum hituðum upp fyrir leikinn með Svala Björgvinssyni körfuboltasérfræðingi.

Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra í USA sem gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í golfi á dögunum og sagði okkur frá þeirri reynslu og við spyrjum hana líka út í rigninguna í Washington.

Við hringdum síðan norður og heyrum í Óðni Svan Óðinssyni fréttamanni sem er á leiðinni á leikinn og spyrjum út í stemninguna í bænum.

Frumflutt

21. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,