
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Apótek bjóða sífellt meiri þjónustu sem skilgreind er sem heilbrigðisþjónusta enda starfa þar menntað heilbrigðisstarfsfólk. Hvort sem það eru blóðþrýstingsmælingar eða ráðgjöf við almennum heilsufarsvandamálum. Er þetta það sem koma skal í heilbrigðisþjónustu á Íslandi? Í Wales á Bretlandseyjum hafa t.d. lyfjafræðingar í apótekum þar frá árinu 2022 getað metið og veitt meðferð við 27 algengum heilsufarsvandamálum. Reynslan þaðan gefur því vísbendingu um hvernig apótek geta bætt aðgengi og létt á öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins án þess að ganga inn á verksvið lækna eða stuðla að óþarfa lyfjanotkun. Til að ræða þessa þróun við okkur kom hún Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju til okkar.
„Það er kominn tími til að sannleikurinn komi í ljós,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, við Vísi eftir að skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu hans voru birt á vef Ríkisútvarpsins. Í skilaboðunum sendi hún Guðmundi tillögu að tilkynningu um afsögn hans úr ráðherraembætti, sem hún ráðlagði honum sömuleiðis að birta. Það er sjaldan sem almenningur fær innsýn í samskipti ráðherra og aðstoðarmanna, hvað þá um svo viðkvæm mál eins og afsögn. Við ræddum við Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing.
Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins óttast að Rússar séu að undirbúa aðgerðir sem gætu reynt á samstöðu þess. Fjölþáttaárásum hefur fjölgað og bandarískar leyniþjónustur telja Vladimír Pútín Rússlandsforseta hafa lagt á ráðin um að gera einhvers konar árás á bandalagsríki. Innrásarstríðið í Úkraínu gengur illa og forsetinn sætir þrýstingi heima fyrir. Við ræddum við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, um stöðu Pútíns og ástandið í Rússlandi.
Hilmar Þór Hönnuson og afi hans, Hafsteinn Guðmundsson bóndi í Flatey, tóku sig saman fyrir nokkrum árum og hófu að safna ljósmyndum af eyjunum í Breiðafirði til að skrásetja og færa í tímaröð. Vildu þeir þannig ná að fylgjast með hvernig lífið í firðinum þróaðist í gegnum árin og yfir í nútímann. Hafsteinn náði þó ekki að klára verkefnið með afabarni sínu en í síðasta mánuði féll hann frá, 91 árs að aldri. Hilmar Þór leitar nú að fólki til að aðstoða sig við að halda verkefninum áfram sem hann hóf með afa sínum. Við ræddum við Hilmar um verkefnið
Öflug miðlun vísinda til almennings hefur aldrei verið mikilvægari segja skipuleggjendur Vísindavöku sem fram fer á laugardaginn. Markmiðið með Vísindavöku er einmitt að færa rannsóknir nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Það er Rannís sem skipuleggur Vísindavöku á Íslandi í samstarfi við íslenska háskóla og stofnanir en hún er haldin samtímis í yfir 400 borgum og bæjum í 40 löndum víðsvegar um Evrópu undir heitinu European Researchers‘ Night. Til að segja okkur nánar frá þessu kom Vísindavökustjórinn Davíð Fjölnir Ármansson til okkar.
Septemberlægð úr skólabókinni. Svona lýsir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur veðrinu sem hefur gengið yfir í dag. Björgunarsveitir hafa staðið í ströngu, járnplötur hafa losnað og trampolín tekið á loft. Við hringdum í Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúa Landsbjargar og ræddum verkefni björgunarsveitanna í dag.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.