Hitabylgjan sem gekk yfir Ísland í maí var að mörgu leyti óvenjuleg samkvæmt skýrslu alþjóðlegs hóps vísindamanna. World Weather Attribution, hjá Grantham-stofnuninni í London. Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags hjá veðurstofunni ræddi kynninguna á veffundi hópsins í gær og var á línunni hjá okkur
Emmanuel Macron fFrakklandsorseti gaf það út í vikunni að hann vildi að samfélagsmiðlar yrðu ekki aðgengilegir börnum og unglingum undir fimmtán ára aldri. Hann segir að innleiða þurfi slíkar reglur á næstu mánuðum. Grikkir, Spánverjar og Frakkar hafa í sameiningu unnið að smíði reglna fyrir Evrópusambandið sem takmarka þann tíma sem unglingar mega verja á samfélagsmiðlum. Gunnar Helgason rithöfundur hefur tjáð sig opinberlega um sömu mál og er á því að banna eigi snjallsímana börnum undir menntaskólaaldri. Við fáum Gunnar til okkar að ræða farsímanotkun barna.
Inga Sæland flutti hjartnæma ræðu á þingi aðildarríkja um samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks í New í gærkvöldi, en þar ræddi hún opinskátt um hvaða áhrif fötlun hefur haft á líf hennar og hlaut fyrir lófaklapp viðstaddra. Við heyrðum í Ingu.
Austurbæjarbíó þekkja höfuðborgarbúar og landsmenn flestir en þetta virðulega hús stendur við Snorrabraut og hefur hýst marga sögufræga viðburði í gegnum tíðina auk þess að vera bíóhús til marga ára. Á dögunum fréttist að þeir Steinþór Helgi Arnsteinsson og Ásgeir Guðmundsson, sem eiga skemmtistaðinn Röntgen og veitingastaðinn Skreið í Reykjavík, myndu taka við rekstri pílustaðarins sem er nú starfræktur í húsinu, og stefna aukinheldur á aukið líf í húsinu. Við fengum Ásgeir til okkar og forvitnuðumst um komandi sumar.
Lúsmýið virðist komið á kreik, landsmönnum til lítillar gleði. Við ræddum við Gísla Má Gíslason prófessor emiritus um þennan árvissa vágest.
Lindy hop er einn af skemmtilegri samkvæmisdönsum sem þróaðist í New York upp úr 3. áratug síðustu aldar. Dansinn dafnaði samhliða djassinum og er talinn grunnur sveifludansana eða swing-dansana. Talsverður uppgangur hefur veri’ð í lindi-hop menningu hér á Íslandi sem okkur í Síðdegisútvarpinu fannst æði áhugavert og fengum því hann Magnús Pálsson til okkar sem ræddi við okkur um íslenskt lindi hop samfélag.