Síðdegisútvarpið

Bæjarfélag á óvissustigi, Glaðari þú samfélagið og Skilaboðaskjóðan

Við hófum Síðdegisútvarpið í dag með fréttum af Suðurlandi en Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður og afmælilsbarn dagsins var á línunni.

Heimsmeistaramót kvenna í körfubolta fór af stað í dag. Mótið er haldið í Berlín þar sem sextán lið keppast um titilinn, en þau hafa aldrei verið jafn mörg. Fyrirkomulagi mótsins hefur jafnframt verið breytt þannig liðin sem vinna sína riðla fara beint í átta liða úrslitin en liðin í öðru og þriðja sæti í riðlinum fara í umspil um þau fjögur sæti sem verða eftir. Einar Örn Jónsson sagði okkur betur frá mótinu hér á eftir.

Átt þú heima í ævintýraskóginum? Svona hljóðar auglýsing frá Leikfélagi Akureyrar en um er ræða áheyrnarprufur fyrir Skilaboðaskjóðuna sem leikfélagið frumsýnir í febrúar 2027. Áheyrnarprufurnar fara fram á morgun og við slógum á þráðinn til Bergs Þórs Ingólfssonar leikhússtjóra fyrir norðan og heyrðum af prufunum og starfinu framundan hjá L.A.

Í Grindavík eru skólarnir farnir af stað, opnunartími í íþróttamannvirkjum hefur verið lengdur út af eftirspurn, réttir hafa verið skipulagðar og bæjarstjórinn hefur boðið bæjarbúum í spjall um málefni Grindavíkur tvisvar í mánuði. Á sama tíma er bærinn þó enn á óvissustigi almannavarna. Í nýlegri grein í vísindaritinu Geophysical Research Letters er m.a. fjallað um stórar sprungur og holrými undir bænum sem engin merki voru um á yfirborðinu en komu í ljós með segulómun. Við ræddum um lífið í Grindavík og framtíðina við Pétur G. Markan bæjarstjóra hér á eftir.

Það eru sífellt fleiri sem hafa uppgötvað sjóinn sem hluta af sinni vellíðan, hvort sem það er fyrir áskorunina, andlegu hvíldina eða einfaldlega góða félagsskapinn. Við ætlum heyra af sjóbaðsleikjanámskeiði sem ber yfirskriftina Glaðari þú. Guðrún Tinna Thorlasíus heitir sem allt veit um þann félagsskap og hún kom til okkar.

Krúttlegasta hjólamót landsins verður haldið í níunda sinn við Perluna í Öskjuhlíð á fyrramálið. Hjólaklúbburinn Tindur, Hjólaskólinn og Krónan standa mótinu, sem er ætlað börnum á aldrinum 2–12 ára. Met var slegið í fyrra þegar um 400 börn og aðstandendur mættu til leiks og von er á góðri þátttöku aftur í ár. Til segja okkur meira af krúttheitunum kom til okkar Þóra Katrín Gunnarsdóttir.

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,