Síðdegisútvarpið

Skíði, sveppir, enska á skiltum og kúmen í Viðey

Á Snæfellsnesi er verið byggja nýtt aðstöðuhús við skíðasvæðið - þið heyrðuð rétt Skíðasvæði Snæfellsness staðsett í Grundarfirði. Við heyrðum í formanni félagsins og fáum það allra nýjasta úr þessu leyndasta skíðasvæði landsins.

Færsla Braga Þórs Valssonar á Málspjallinu á Facebook hefur vakið mikil viðbrögð, en þar benti hann á það nær öll skilti við aðkomuna Geysi í Haukadal séu á ensku, og enga íslensku þar sjá. Hvað veldur? Er þetta einhverskonar minnimáttarkennd, eða misskilin þjónusta við ferðamenn? Við ræddum það við Braga.

1640 Svepparíkið, íslensk þáttaröð hóf göngu sína á RÚV á sunnudaginn, en hún fjallar eins og nafnið gefur til kynna um sveppi frá hinum ýmsu hliðum. Lífríki sveppa er fjölbreyttara en margan grunar, og við ræddum það við mæðgunar Önnu Þóru Steinþórsdóttur leikstjóra og umsjónamanninn Ernu Kanemu Mashinkila.

Sænski stangarstökkvarinn Armand Duplantis bætti í gærkvöld heimsmetið í stangarstökki enn einu sinni. Duplantis fór þá yfir 6,29 m á frjálsíþróttamóti í Búdapest í Ungverjalandi og bætti fyrra met sitt um einn sentimetra. Yngri systir Duplantis heitir Johanna og er 22 ára. Hún er einnig stangarstökkvari og er einnig gera það gott í greininni. Sigurbjörn Árni Arngrímsson sagði okkur sitthvað um Duplantis systkynin.

Um helgina verður því fagnað Heilsustofnunin í Hveragerði verður 70 ára. Við heyrðum í Þóri Haraldssyni forstjóra um þessa merku stofnun aðeins um söguna og hvað verði gert í tilefni tímamótanna.

Það vita það kannski ekki allir en það vex kúmen í Viðey. Upphaf kúmenræktunar rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen. Fræin eru orðin fullþroskuð og Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur sem leiðir tínsluferðir í Viðey sagði okkur allt um þetta.

Frumflutt

13. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þær Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þær fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,