Síðdegisútvarpið

Málsókn gegn Booking og sjálfboðaliðar að niðurlútum komnir

Til okkar kom Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður og ræddi stöðuna í mið austurlöndum.

Sjálfboðaliðar dýraverndunarsamtaka eru niðurlútum komnir vegna gríðarlegs fjölda gæludýra sem eru heimilislaus og á vergangi. Við ætlum ræddum stöðuna við Söndru Ósk Jóhannsdóttur sjálfboðaliða hjá Dýrfinnu.

Fleiri tugir íslenskra fyrirtækja sem nýtt hafa þjónustu gistibókunarsíðunnar Booking.com hafa skráð sig í samevrópska hópmálsókn á hendur fyrirtækinu. En út á hvað gengur þessi málssókn því svaraði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,

hefur Sorpa hafist handa við koma upp öryggismyndavélum á grenndarstöðvum sínum í Reykjavík. Hvers vegna er það ? Gunnar Dofri Ólafsso sviðsstjóri þjónustu og samskiptasviðs Sorpu var á línunni

Það ríkti sannkallaður samstarfsandi í Skálholti um helgina en þá var bókasafn úr turni Skálholtsdómkirkju flutt úr turni kirkjunnar niður í nýja bókhlöðu í kjallara Gestastofunnar. Það voru sjálfboðaliðar úr ýmsum áttum, starfsmenn, björgunarsveitarfólk, kvenfélagskonur, fjölskyldumeðlimir og einstaka ferðamenn tóku þátt. Við heyrðum í Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi í Skálholti um þetta verkefni og bókakostinn sem til stendur opna fyrir almenningi.

Frumflutt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,