Síðdegisútvarpið

Veður og færð, nikótínpúðar og Taylor Swift

Sendinefndir Rússa og Úkraínumanna hittust í tyrknesku borginni Istanbúl í morgun og funda um leiðir til ljúka innrásarstríðinu í Úkraínu. Þetta er í annað sinn sem sendinefndirnar hittast. Ástrós Signýjardóttir fréttamaður kíkir til okkar í þáttinn en hún hefur fylgst með fréttum af fundinum í dag.

Á laugardaginn var alþjóðlegur dagur án tóbaks. Í ár beinir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og heilbrigðissamtök um allan heim sjónum því hvernig tóbaks- og nikótíniðnaðurinn beitir markvissum og oft blekkjandi aðferðum til gera vörur sínar aðlaðandi, sérstaklega fyrir börn og ungmenni. Jóhanna S. Kristjánsdóttir meðstjórnandi, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í tóbaks - og nikótínvörnum um Nikótínlaust Ísland kemur til okkar á eftir.

Magnea Gná Jó­hanns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, hef­ur lagt til í for­sæt­is­nefnd Reykja­vík­ur­borg­ar komið verði upp upp­lýs­inga­spjaldi í Ráðhúsi Reykja­vík­ur um kjörna full­trúa í borg­ar­stjórn. Við heyrum í Magneu í þættinum.

Í gær byrjuðu í sýningu á RÚV þættir um sögu kvennalandsliðsins á Íslandi, Systraslagur heita þættirnir sem eru fimm talsins. Hannes Þór Halldórsson einn framleiðanda þáttanna kemur til okkar á eftir og segir okkur frá tilurð og gerð þáttanna.

Fyrir helgi bárust fréttir af því Taylor Swift hefði fengið kaupa aftur réttinn á plötunum sínum. En um hvað snýst málið ? Ingunn Lára Kristjánsdóttir fréttakona fer yfir það með okkur hér á eftir.

Appelsínugular viðvaranir taka gildi á austanverðu landinu í kvöld og í nótt. Óvissustig verður á nokkrum vegum og gæti þeim því verið lokað með skömmum fyrirvara. Við heyrum í upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar G. Pétri Matthíassyni undir lok þáttar.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,