Síðdegisútvarpið

Veðrið, víkingar, grill og Mugison

Stjórnendur í dag eru Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, Kristján Freyr Halldórsson og Rúnar Róbertsson. Sent var beint út frá Hljómskálanum.

Í nokkur ár höfum við heyrt reglulegar fréttir af kvikusöfnun, landrisi og aflögun á Reykjanesskaga og nánast verið með niðurtalningu í beinni næsta eldgosi. En það hefur lítið verið frétta af þessum vígstöðum undanfarið, og við fengum Benedikt Ófeigsson fagstjóra aflögunarmælinga hjá Veðurstofunni til segja okkur hvort þetta bara búið.

Hin árlega Víkingahátíð hefst í dag og fer dagskrá helst fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði, hátíðin stendur yfir dagana 14. til 18. júní og dagskráin býður m.a. upp á opinn markað, víkingabardaga, leiki, tónlist, handverk og víkingaskóla fyrir börn ... svo eitthvað nefnt. Jana Arnarsdóttir er ein af þeim sem stendur í undirbúningi hátíðarinnar og við slógum á þráðinn til hennar.

Þjóðhátíðardagurinn nálgast óðfluga og eflaust mikið um dýrðir víða um land. Fjölbreytt 17. júní dagskrá verður í boði í Reykjavík, skrúðganga, tónleikar, götuleikhús, sirkus,og m.a.s. fornbílasýningar hér í Hljómskálagarði svo fátt eitt nefnt. Hún Björg Jónsdóttir er verkefnastjóri viðburða hér í Reykjavík og heimsótti okkur í Hljómskálann.

Þegar sólin er hátt á lofti og veðrið leikur við okkur þá öskrar grillið á pallinum, eða svölunum á okkur og við æðum í kjörbúðina eftir grænmetinu, kjöti og sósum - en hvernig er grilltískan sumarið 2025? Er eitthvað nýrra en annað og erum við allt of gjörn drekkja matnum í majónes-sósum? Hún Fanney Dóra Sigurjónsdóttir kokkur fór yfir sumargrillið og sósurnar með okkur.

Tónlistarmaðurinn Mugison á sitt heimili hér í Hljómskálanum um þessar mundir en hann hafði lengið látið sig dreyma um spila í þessu fallega húsi. Hann hóf leika hér í gær, með lágstemmda tónleika fyrir ástfangið fólk á öllum aldri eins og hann orðar það. Við spjölluðum við Mugison sem tók lagið fyrir okkur í lok þáttar.

Lagalisti

Stjórnin - Sumarlag.

Nik Kershaw- I Won't Let The Sun Go Down On Me.

Á Móti Sól - Spenntur.

Magnús Þór & Jónas Sigurðsson - Ef ég gæti hugsana minna.

Foster The People - Pumped up kicks.

Mugison - Sólin Er Komin.

Elín Hall og Una Torfadóttir - Bankastræti.

Blazroca og Ásgeir Trausti - Hvítir skór.

U2 - Pride (In The Name Of Love).

Celebs og Sigga Beinteins - Þokan.

Frumflutt

13. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,