Um síðustu helgi eignuðumst við heimsmeistara í dansi á Iceland Dance festival sem fram fór í Garðabæ. Meðal þeirra voru dansarar í flokknum World junior U16, sem er aldurinn 12 til 15 ára. Þau Soffía Ísabella Bjarnadóttir og Eiður Fannar Gapunay eru sem sagt heimsmeistarar í 10 dansa keppni í þessum flokki og þau komu til okkar.
Við ætlum að kíkja út í heim í þættinum í dag. Þar er efst á baugi fundur G7 ríkjanna sem haldinn er í Frakklandi en þar eru málefni Miðausturlanda ofarlega á baugi og virðast einhver teikn á lofti um að friður gæti verið í augsýn. Jafnframt samþykktu leiðtogar G7-ríkjanna að auka enn frekar þrýsting á Rússa vegna stríðsins í Úkraínu. Hallgrímur Indriðason kom til okkar með það helsta.
Og síðasta Spánarspjall fyrir sumarfrí Síðdegisútvarpsins er í dag þegar við fáum áhugaverðar fréttir frá Jóhanni Hlíðar beint frá Spáni. Jóhann sagði okkur af fyrstu stóru hitabylgjunni sem skellur á á Spáni um næstu helgi, eftirlitslausum ströndum þar sem alltof margir drukkna árlega og frá greiningu sem segir gervigreindina vera að rústa tónlistariðnaðinum.
Við tiltekt vegna flutninga Sjálfstæðisflokksins úr Valhöll í nýtt húsnæði kom í ljós gríðarlegt safn bóka sem flokkurinn hefur gefið út í gegnum tíðina. Nú hefur verið opnaður bókamarkaður þar sem sögufrægar bækur, ásamt ýmsum öðrum varningi, eru seldar á vægu verði og aðsóknin hefur farið fram úr væntingum. Við heyrðum í Tryggva Mássyni, framkvæmdastjóra flokksins í þættinum í dag.
Í Síðdegisútvarpinu í gær töluðum við við Guðmund Ármann Pétursson, formann Landssamtaka Þroskahjálpar, en hann sagði það umhugsunarefni að á sama tíma og Alþingi ætli að skipa enn eina nefndina til að rannsaka aðbúnað barna sem vistuð voru á einkaheimilum, skuli stjórnvöld veikja þá réttindagæslu sem á að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður Velferðarnefndar og Eiríkur Smith, sérfræðingur í réttindum fatlaðs fólks hjá Mannréttindastofnun komu til okkar til að fara yfir málið.
Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsrýnirinn okkar, kom í lok þáttar og mælti með nýjum sjónvarpsþáttum til að hámhorfa í sumarfríinu og á meðan HM í knattspyrnu stendur yfir fyrir þau sem ekki horfa á tuðrusparkið.