Síðdegisútvarpið

Íbúð á Heklureit, fagmennska í ferðamennsku, skák og geimurinn

þáttaröð - Með okkar augum lítur dagsins ljós í ágúst hér á ruv og við tókum smá forskot því við laumuðum okkur niður í st. 12 þar sem upptökur voru í fullum gangi.

Guðmundur Björnsson aðjúnkt í ferðamálafræði við og faglegur umsjónarmaður leiðsögunáms hjá Endurmenntun skrifaði áhugaverða grein á Vísi í dag undir yfirskriftinni Ferða­leiðsögn í skjóli á­byrgðar tími til kominn endur­hugsa nálgunina. Þar segir m.a það ríki undarleg þversögn í íslenskri ferðaþjónustu og á meðan almenningur, fræðasamfélagið og stór hluti atvinnugreinarinnar viðurkenni mikilvægi fagmennsku og sérþekkingar í leiðsögn ferðamanna þá virðist stjórnsýslan líta á það allt öðrum augum. Guðmundur kom til okkar í spjall

Fyrstu mynd­ir ­sjón­auk­ans Veru Ru­bin birtust í fyrrakvöld, en gríðarlegt magn gagna frá hon­um kann veita svör um sögu al­heims­ins, ní­undu plán­etuna og huldu­efni. Sæv­ar Helgi Braga­son, Stjörnu Sævar, kom til okkar og sagði okkur allt um þetta.

Færsla Bergs Þorra Benjamínssonar á Facebook í fyrradag hefur vakið mikla athygli, en þar rýnir hann í teikningar á nýrri íbúð á Heklureitnum, og hefur sitt hvað við skipulag hennar athuga og verð athuga. Við heyrðum í Bergi.

Skákáhugi á Íslandi er gríðarlegur og þar eigum við heimsmet líkt og í mörgu öðru. Við fengum til okkar stórmeistarann Vigni Vatnar og spáðum í skákina og helstu ástæður fyrir því hún nýtur svo mikilla vinsælda á Íslandi um þessar mundir.

Frumflutt

25. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,