Síðdegisútvarpið

Leikvellir í borginni, Jómfrúin í útrás og berjaspretta

Í gær ræddum við við Sverri Norland og börnin hans tvö þau Ölmu og Baltasar en tilefnið var útileiksvæði í borginni og þeirra hlið á því máli. Sverri hafði þá áður skrifað áhugaverða færslu á FB um nýtt svæði við Hlemm þar sem honum fannst skorta hugmyndaauðgi og þar voru börnin honum sammála. í dag heyrðum við í borgarhönnuðinn Rebekku Guðmundsdóttur sem sagði okkur af því hvað haft til hliðsjónar þegar svæði eru skipulögð fyrir börn og fræddi okkur um þetta svæði við Hlemm.

Í nýrri skýrslu sem nefnist “Heilbrigðisþjónusta sem borgar sig sem Parkinsonsamtökin á Íslandi létu vinna og var afhent Heilbrigðisráðherra fyrr í dag kemur fram Íslendingar með Parkinson verði tvöfalt fleiri eftir fimmtán ár. Í skýrslunni kemur enn fremur fram árlega muni beinn kostnaður ríkisins vegna sjúkdómsins fara úr fimm milljörðum króna í tíu milljarða. Erna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Parkinson samtakanna kom til okkar í þáttinn í dag.

Það bárust af því fréttir Jazzinn á Jómfrúnni í Reykjavík væri hefja sitt þrítugasta starfsár. Jafnframt hefur það komið fram Jómfrúin komin austur fyrir fjall nánar tiltekið í Hveragerði og hefur þar með tekið yfir Matkránna sem þar var rekin. Jakob E. Jakobsson vert á Jómfrúnni settist hjá okkur og sagði okkur allt um málið.

Við ætlum líka heyra af heimildarmynd sem nefnist Bóndinn og verksmiðjan en myndin hefur verið 11 ár í smíðum og höfundur hennar er Hrafnhildur Gunnarsdóttir og unnin í samstarfi við Barða Guðmundsson og myndin verður frumsýnd á Skjaldborgarhátíðnni á Patreksfirði um helgina.

Hinsegin dagar og Samtökin '78 taka sameiginlega þátt í Mannréttindaráðstefnu WorldPride, sem fram fer dagana 4.–6. júní í Washington, DC. Siggi okkar Gunnars er í frí erlendis en var viðstaddur rástefnuna og sendi okkur glænýtt viðtal sem hann tók við atvinnuvegaráðherra Hönnu Katrínu Friðriksson sem ávarpaði rástefnuna fyrr í dag.

Og gróður var kominn vel af stað eftir sögulegan hlýindakafla í maí, en honum lauk með látum feins og hefur ekki farið framhjá neinum væntanlega. En hvaða ahrif hefur þetta kuldakast á gróður, og ekki síst berjasprettu? Sveinn Rúnar Hauksson læknir og berjasérfræðingur kom til okkar og fór yfir stöðuna.

Frumflutt

5. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,