Síðdegisútvarpið

Loðnan, Fánaborg fáránleikans,

Jóhann Hlíðar Harðarson sagði okkur í dag frá banni og aðgerðum á Spáni gegn netnotkun barna sannri glæpasögu þar sem morð kemur við sögu og í Frakklandi hafi 24 ára gamall maður leitað á bráðamótttöku um helgina af því honum var illt í rassinum.

Loðnan er á leiðinni samkvæmt nýjustu fréttum. Hafrannsóknarstofun hefur lagt til loðnukvótinn verði allt 197 þúsund tonn og sem þýðir fimmföldun þess sem spáð hafði verið Við heyrðum í Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík setti áhugaverða færslu á FB síðu sína í gær en það fjallar hún um fánaborg fáránleikans eins og Hildur kallar það en málið snýst um tillögu meirihluta borgarstjórnar um fáni Grænlands verði dreginn húni við hlið fána Palestínu og fána Úkraínu. Við heyrðum í Hildi í þættinum.

Ásdís Ósk fasteignasali hjá Húsaskjóli setur fram hugleiðingar varðandi kaup á nýrri fasteign með verktakalánum. Hún segir þessa samninga flókna og hvetur fólk til að kynna sér þá vel sérstaklega þegar kemur að endurfjármögnum  Ásdís kom til okkar.

Við ætlum líka að heyra hvað boðið verður upp á í Kveiksþætti kvöldsins en þar stíga fram menn sem voru vistaðir á sveitabæ sem börn allt til ársins 2002 og lýsa miklu ofbeldi sem þeir segjast hafa orðið fyrir á bænum.

Hin ýmsu söfn eru starfandi á landinu og er eitt þeirra Essó safnið sem við höfum ekki heyrt um áður. Þeir Jóhann Örn Ingimundarson, safnstjóri og Bogi Árnason komu til okkar og sögðu okkur frá þessu safni sem geymir söguna frá 1913.

Frumflutt

3. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,