Síðdegisútvarpið

Leikskólamálin,netárásir,heimsmeistari og lúðrasveit í beinni

Síðdegisútvarpið 22. maí

Nærri tvö þúsund leikskólapláss sem dreifast á hverfi borgarinnar, verða til á næstu fimm árum samkvæmt tillögum sem borgarráð samþykkti í dag. Tillögurnar koma fram í skýrslu spretthóps borgarstjóra um leikskólauppbyggingu. Skúli Helgason og Helga Þórðardótir sem sæti eiga í spretthópnum komu til okkar í síðdegisútvarpið i dag.

Netöryggisstofnun breska ríkisins segir Rússa hafa gert um 10.000 netárásir á eftirlitsmyndavélar frá byrjun innrásarinnar í Úkraínu og ráðleggur stofnunum hafa varann á. En í hvaða tilgangi og hvernig er þetta framkvæmt ? Við ræddum við Ými Vigfússon tæknistjóra Keystrike en hann er jafnframt Prófessor og fyrrverandi hakkari.

Föstudaginn 27. júní næstkomandi býður Siðmennt kærustupörum ganga í hjónaband í snarpri, rómantískri, hátíðlegri og síðast en ekki síst lögformlegri athöfn. Við forvitnuðumst um þetta og fengum til okkar Arndísi Önnu Kristínardóttur formann Siðmenntar.

Laufey Agnarsdóttir varð í dag heimsmeistari í bekkpressu með búnaði, Laufey var á línunni.

Ingi Garðar Erlendsson er stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar kemur til okkar á eftir en það er nóg um vera hjá honum og skólahljómsveitinni þessa dagana. Þau eru fara spila á tónleikum með Benna Hemm Hemm um helgina en fyrst komu þau til okkar og tóku lagið í beinni.

Frumflutt

22. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,