Síðdegisútvarpið

Málþóf, Margrét Lára og ofklæddir þingmenn

Bæði Íran og Ísrael féllust á vopnahléstillögu Bandaríkjaforseta í morgun en samkomulagið virðist þegar hafa farið út um þúfur. Iðunn Andrésdóttir fréttamaður sagði okkur frá helstu atburðum dagsins.

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður kom til okkar og sagði okkur frá stöðunni á Alþingi en þar var rætt um veiðigjaldsfrumvarið til hálf þrjú í nótt. Þingfundur hófst svo aftur í morgun.

Óform­leg­ar regl­ur og venj­ur um klæðaburð þing­manna hafa verið Jóni Gnarr þingmanni ofarlega í huga síðan hann settist á Alþingi. Í dag gerði hann þær svo umtalsefni í þinginu undir dagsrkárliðnum fundarstjórn forseta. Jón Gnarr kom til okkar.

Út er komin ævisaga knattspyrnukonunnar Margrétar Láru Viðarsdóttur. Margrét Lára er eins og alþjóð veit meðal fremstu íþróttamanna sem Ísland hefur alið en hún er markahæsti landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu frá upphafi en hún lék sinn fyrsta A landsleik 16 ára gömul. Þessi magnaða kona sem ruddi brautina fyrir ungar knattspyrnukonur kom til okkar og sagði frá þessari glæsilegu bók sem út er komin.

Læknafélag Íslands hefur gert alvarlega athugasemdir við frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar. Stjórn félagsins segir verið mismuna sjúklingum eftir efnahag þar sem greiðsluþátttöku í erlendri heilbrigðisþjónustu forgangsraðað yfir einkarekna heilbrigðisþjónustu hérlendis. Við ræddum þetta við Ragnar Frey Ingvarsson formann læknafélags Reykjavíkur.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,