Við héldum áfram að fylgjast með stöðu mála hvað fuglaflesuna skaðlegu varðar og settum okkur aftur í samband við Elísabetu Hrönn Fjóludóttur dýralækni og verkefnastjóra frá dýraþjónustu Reykjavíkur. Fyrr í dag sat hún á fundi með MAST og er þess vegna með ferskar upplýsingar um stöðu mála. Einnig ræddum við aðeins leðurblökuna Reykvísku.
Viðburður á facebook varðandi opnun á McDonalds í Reykjavík í einn dag hefur vakið verðskuldaða athygli. Margir töldu þetta hálf misheppnað grín sem ekki næði út fyrir facebook en svo er aldelis ekki. Sindri Leví Ingason er maðurinn á bak við uppátækið og hann ætlar að fljúga til London, sækja 100-200 hamborgara og koma til baka sama dag. Gefa þá alla sem svokallaða happy meal. Sindri Leví kom í þáttinn.
Ólína Laxdal sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar mætti til okkar og talaði um glænýjan Ferðapúls en Ferðapúlsinn kortleggur stafræna stöðu og er vegvísir að aukinni arðsemi, hæfni og hagræðingu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum.
Þegar hinn heimsfrægi snjóbretta kappi Alex ‘Chumpy’ Pullin lést greyp konan hans til örþryfa ráða, léta ná úr honum sæði þar sem þau höfðu alltaf dreymt um að eignast barn saman. Í dag eiga þau dóttur saman þrátt fyrir að Alex hafi í raun haft lítið með það að gera. Þetta kraftaverk vekur upp margar spurningar hjá okkur í síðdegisútvarpinu. Við heyrðum í Þóri Harðarsyni fósturfræðingi og framkvæmdastjóra Sunnu frjósemisstofu.
Í dag eru hundrað ár liðin frá því fyrsta Rauðakross deildin hér á landi var stofnuð. Það voru Akureyringar sem stofnuðu fyrstu deildina 29. janúar 1925, tæpum tveimur mánuðum eftir stofnun Rauða krossins á Íslandi. Í dag var mikil veisla fyrir norðan í tilefni afmælisins og Ágúst Ólafsson var þar og ræddi við Ingibjörgu Halldórsdóttur, deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, eins og þessi hundrað ára deild nefnist í dag.
Akureyringar sem hafa orðið varir við fólk þramma upp og niður kirkjutröppurnar í hádeginu þurfa ekki að hafa áhyggjur, þetta eru bara Rebekka Kristín Garðarsdóttir og félagar hennar sem vinna á starfsstöð Wise, reyndar hafa fleiri slegist í hópin eftir að þau tóku upp á því að fara daglega út í heilsubótagöngu í kirkjutröppunum. Rebekka var á línunni.