Síðdegisútvarpið

Hvarf Jóns Þrastar, útivist, netárásir og holur

Írskir lögreglumenn eru væntanlegir til landsins í næstu viku til taka skýrslur af 35 manns vegna hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar í Dublin árið 2019. Anna Marsibil Clausen fjallaði ítarlega um hvarfið í hlaðvarpsþáttunum Hvar er Jón, sem framleiddir voru í samvinnu RÚV og írska ríkisútvarpsins, og hún kom til okkar fara yfir nýjustu vendingar í málinu.

Vinsælustu sjónvarpsþættir sem landinn fylgist jafnan með eru oft þættir eins CSI, sem fjalla um réttameinafræðinga störfum hjá lögreglunni. Emma Jóna Her­manns­dótt­ir, 27 ára Ísfirðing­ur, út­skrifaðist ný­verið úr masters­námi í rétt­ar­meina­fræði frá há­skól­an­um í Upp­söl­um. Hún sagði okkur frá náminu og í hverju starfið felst.

Útivist fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni er slegið upp í veislu. Og þar sem um er ræða Útivist er enginn staður sem hentar betur en svæðið fallega í Básum á Goðalandi. Þar hefur Útivist efnt til gönguferða og fagnaðar um Jónsmessu árum saman og stendur mikið til. Hörður Magnússon, framkvæmdastjóri Útivistar, var á línunni.

Netárásir hafa aldrei verið fleiri hér á landi, samkvæmt nýrri ársskýrslu Cert-is, og er langmest um svokallaðar vefveiðar, þar sem reynt var komast yfir viðkvæmar upplýsingar á borð við kortanúmer eða lykilorð. Guðmundur Arnar Sigmundsson sviðsstjóri hjá Cert-is kom til okkar og fór yfir hvað ber varast.

Við fjölluðum í gær um holur í vegum, sem holuáhugamaðurinn Nicolas ætlar sér kortleggja í sumar. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Colas og Loftmyndir ehf hafa sett upp holukort þar sem er hægt sjá allar holur sem vitað er um og tilkynna nýjar. En af hverju skiptir það máli? Runólfur Ólafsson hjá FÍB kom til okkar og útskýrði það.

Jónsmessuhátíð er farin af stað á Eyrabakka. Þetta mun vera gamaldags hátíð, róleg og þægileg og enginn hamagangur en svo segja skipuleggjendur. Hera Fjölnisdóttir Fjord er einn þeirra og við heyrðum í henni í lok þáttar.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,