Síðdegisútvarpið

Lúðrasveitir mætast, einkunnir í tölustöfum og Íslendingur í Kænugarði

Lúðrasveitabardagi ársins verður háður á Hörputorgi á Menningarnótt. Þar mætast rótgrónar lúðrasveitir og etja kappi í tónlist með alls kyns sprelli og húllumhæi. Mútur, svik, spilling og prettir er það sem kemur mönnum áfram í þessum glæsilega leðjuslag sem er orðinn einn af hápunktum Menningarnætur. Hans Orri Straumland veit allt um þennan bardaga og kom til okkar.

Næsta vor útskrifast nemendur í íslenskum grunnskólum með tölustafi á einkunnaspjöldunum sínum í stað bókstafa. Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er hlynntur slíkri einkunnagjöf samkvæmt könnun Maskínu frá því síðasta haust, eða ríflega 88%. Bjarki Már Baxter, lögmaður og faðir, hefur lengi gagnrýnt bókstafaeinkunnakerfið sem hann segir geri honum erfitt fyrir með fylgjast með námsárangri barna sinna. Við ræddum við hann um þessa breytingu.

Nýr bæjarstjóri í Grundarfirði er Birkir Jón Jónsson en hann er fyrrverandi varaformaður Framsóknarflokksins og sat á þingi fyrir flokkinn frá 2003-2013. Þá var hann bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður bæjarráðs. Þá sat hann í bæjarstjórn Fjallabyggðar og er hann orðinn bæjarstjóri í Grundarfirði. Við heyrðum í nýja bæjarstjóranum.

Víða er farsíma- og gagnasamband ófullnægjandi á Suðurlandi, meðal annars á fjölförnum ferðamannaleiðum og þar sem náttúruvá getur skapað þörf fyrir skjót viðbrögð og upplýsingamiðlun. Dæmi eru um viðbragðsaðilar hafi ekki fengið útkallsboð með eðlilegum hætti og íbúi hafi ekki náð sambandi við Neyðarlínu. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra og formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, var á línunni.

minnsta kosti fimmtán voru drepin í margra klukkustunda loftárásum Rússlands á höfuðborg Úkraínu í nótt. Fjöldi íbúðarhúsa og barnaspítali skemmdust í árásunum. Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari sem býr í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, birti myndbrot á samfélagsmiðlinum Instagram í nótt þar sem sprengingarnar voru óþægilega nálægt heimili hans. Óskar var á línunni beint frá Kænugarði.

Nýr sjónvarpsþáttur fer af stað á RÚV á sunnudagskvöldið þar sem þær Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri og Viktoría Hermannsdóttir dagskrárgerðarkona gramsa í safni sjónvarpsins og sýna þjóðinni valda gullmola sem hafa verið festir á filmu síðan sjónvarpið hóf útsendingar sínar 1966. Þær Viktoría og Ragnheiður Thorsteinsson, framleiðandi, komu til okkar.

Birt

20. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,