Síðdegisútvarpið

Fasteignmarkaðurinn,landsleikur og hauskúpa í banka

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar var á línunni hjá okkur vegna óveðursins.

Páll Pálsson fasteignasali kom til okkar. Hann telur ástæða fyrir háu vaxtastigi og hárri verðbólgu á Íslandi lóðaskortur og þeir sem stjórni sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu síðustu fimm til tíu árum beri ábyrgð á því. liggi fyrir hækka eigi gatnagerðagjöld frá 1.september og Páll spyr sig hvernig það eigi leysa framboðsskort á fasteignamarkaði. Við ræddum málið við Pál.

Við heyrðum af hauskúpu sem sem verið hefur meðal húsmuna í útibúi Landsbankans á Ísafirði - en er á leiðinni í hendur vísindamanna. Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur ræddi við okkur um þetta dularfulla mál.

Edda Sif Pálsdóttir hitaði upp fyrir landsleikinn - hún er stödd á Laugardalsvelli sem stelpurnar okkar ætla vígja á eftir þegar þær mæta frökkum í síðasta leik þeirra í þjóðardeildinni.

Við heyrðum af veiðimönnum sem voru við veiðar í Laxá í Mývatnssveit en ákváðu pakka saman út af snjókomu og kulda og auglýsa veiðileyfin til sölu. Einn þeirra er Pétur Pétursson og við hringdum í hann.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar skrifaði grein sem birtist á Vísi í dag og var umfjöllunarefni hennar frumvarp innviðaráðherra um breytingar á jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Regína segir Með einu pennastriki hafi stjórnvöld ákveðið skerða lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar með því lækka árlegt framlag úr Jöfnunarsjóði um 250 milljónir króna. Frumvarpið hefur tvisvar áður verið lagt fram og hefur Mosfellsbær lagt fram ítarlega umsögn um málið. Regína var á línunni hjá okkur.

Frumflutt

3. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,