Síðdegisútvarpið

Ný tilvera á Ítalíu, Íslandstofa í fundaherferð, og Strætó gefur í.

Við reynum reglulega líta út fyrir höfuðborgarsvæðið og heyra hvað er gerast víðar um landið. Í dag beinum við sjónum okkar Hrunamannahreppi og ætlum taka stöðuna með sveitarstjóranum, Aldísi Hafsteinsdóttur. Þar hefur ýmislegt verið á döfinni meðal annars endurbætur á ráðhúsinu, fríbúð og fleiri verkefni sem setja svip sinn á samfélagið. Við heyrðum í Aldísi.

Á sunnudaginn verða breytingar á leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Tímatöflum á leiðum 13, 14, 15 og 19 verður breytt til bæta áreiðanleika þeirra og auka þar með stundvísi. Síðastliðið sumar voru slíkar breytingar gerðar á nokkrum leiðum og leiða því getum hafi heppnast vel fyrst haldið er áfram með svipaðar breytingar nú. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdarstjóri Strætó, var á línunni.

Á síðasta ári var samþykkt endurskoðuð langtímastefna fyrir íslenskan útflutning samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs undir forystu Íslandsstofu. Markmiðið er skýrt: auka útflutningstekjur og styðja við sjálfbæran hagvöxt. stendur yfir fundaherferð um land allt þar sem stefnan er kynnt fyrirtækjum og hagaðilum. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, kom í Síðdegisútvarpið og sagði okkur frá því hvernig herferðin hefur gengið, hver viðbrögðin hafa verið og hvaða tækifæri blasa við íslenskum útflutningsfyrirtækjum.

Margir láta sig dreyma um breyta til í lífinu, skipta um kúrs, kaupa eða leigja hús á framandi slóðum – en hjá flestum stoppar það við drauminn. Erla Gerður Sveinsdóttir og eiginmaður hennar, Geir Borg, létu hins vegar vaða. Þau keyptu hús í lítilli sveit á Ítalíu - hús sem var langt frá því að vera tilbúið til búsetu og krafðist umfangsmikilla lagfæringa. Þar hafa þau verið á fullu síðustu mánuði. Erla kom til okkar fyrir nokkrum mánuðum og sagði frá fyrstu skrefunum í þessu ævintýri. Við heyrðum í henni og spurðum hvað hefur áunnist – og hvernig draumurinn lítur út í dag.

Meðaltími Íslendinga í bóklestur fer minnkandi og sífellt fleiri segjast aldrei lesa bækur. Þessari þróun ætlar Miðstöð íslenskra bókmennta snúa við með lestrarhvatningu fyrir fullorðið fólk sem fer af stað á morgun, fimmtudag undir yfirskriftinni Bókaðu stund fyrir bók. Við heyrðum í Hrefnu Haraldsdóttur, framkvæmdarstjóra Miðstöðvar íslenskra bókmennta.

Á laugardaginn kemur þann 28. febrúar frumsýnir leikhópurinn Miðnætti, í samstarfi við Þjóðleikhúsið, glænýja íslenska barnasýningu með frumsaminni tónlist, sem hefur fengið nafnið Hreiðrið. Litla sviðinu hefur verið umbylt fyrir sýninguna og útbúið sérstaklega fyrir litla áhorfendur sem geta skriðið öruggir um mjúkt og litríkt rýmið. Í sýningunni eru orð notuð og notast er við tákn með tali. Þess vegna hentar sýningin vel börnum með ólík móðurmál og heyrnarskertum börnum. Leikstjórinn Agnes Wild kom til okkar í lok þáttar.

Birt

25. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,