Síðdegisútvarpið

Blúshátíð, Spánarspjall og Kimi Antonelli

Blúshátíð í Reykjavík fer fram á morgun og á skírdag á Hilton Reykjavík Nordica. Guðmundur Pétursson sagði okkur allt um hátíðina.

Í Spánarspjalli dagsins sagði Jóhann Hlíðar Harðarson okkur af líknardrápi, "Framtíðar- og stefnumótunarstofnun ríkisins" og draugaþorpum.

Bandaríkjamaðurinn Nathan H.K. kenndi sjálfum sér íslensku og hefur búið til smáforrit sem nota meðal annars til íslenskukennslu fyrir útlendinga.

Í dag er alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir sagði okkur hvar Ísland stendur í þessari mannréttindabaráttu og hvar við getum gert betur.

Á föstudaginn langa sýnir RÚV nýja heimildarmynd, Ó góða gamla Grindavík, um náttúruhamfarir á Reykjanesskaga. Íbúar Grindavíkur neyddust til yfirgefa bæinn þegar fór gjósa og allt var gert til koma í veg fyrir bærinn færi undir hraun. Margrét Hrafnsdóttir leikstýrir og framleiðir.

Hver er Kimi Antonelli? Þessi nítján ára gamli strákur hefur unnið tvær keppnir það sem af er móti. síðast Japans kappaksturinn. Sló hann þar aldursmet sem fyrrum margfaldur heimsmeistari Lewis Hamilton átti.

Birt

31. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,