Síðdegisútvarpið

Sambandsslit Musk og Trump, tattoo, ofurhlaup og sumarveðrið

Við byrjum á veðrinu sem hefur ekki beint leikið við okkur síðustu daga. Er haustið komið eða kemur sumarið aftur? Siggi Stormur var á línunni hjá okkur.

Athafnamaðurinn Elon Musk var þar til nýlega einn af dyggustu bandamönnum Trumps Bandaríkjaforseta. Hatrammar deilur ríkja milli þeirra og fjölmiðlar vestanhafs herma ráðgjafar forsetans reyni lægja öldurnar. Við köfuðum í málið með Friðjóni Friðjónssyni borgarfulltrúa hjá Reykjavíkurborg.

Dóttir íslensks manns sem var meðal 123 sem fórust þegar norska olíborpallinum Alexander Kielland hvolfdi yfir utan strendur Noregas árið 1980 fékk þær fregnir í gær loksins fengju aðstendendur hinna látnu miska sinn bættan. Guðný Hansen missti föður sinn aðeins tíu ára gömul í slysi sem hennar sögn hefði ekki þurft gerast. En hvað gerðist eiginlega á borpallinum þennan örlagaríka dag. Vera Illugadóttir umsjónarmaður í Ljósi sögunnar kom til okkar en hún hefur gert þátt um málið.

The Icelandic Tattoo convention fer fram um helgina. Við hér í Síðdegisútvarpinu fáum ekki nóg af því fræðast um þessa árlegu hátíð. Össur Hafþórsson skipuleggjandi hátíðarinnar mætiti til okkar, tattúveraður frá toppi til táar og ræddi við okkur um húðflúr og hátíðina sjálfa.

Myndin GOTH í RVK verður sýnd hér á RÚV á annan í hvítasunnu en hún var forsýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi. Um hvað fjallar myndin og hverju eiga áhorfendur RÚV von á, á mánudaginn kemur. Árni Sveins leikstjóri og framleiðandi kom til okkar.

Hengill Ultra maraþonið fer fram um helgina og eftri nokkrar mínútur leggja fyrstu hlaupararnir af stað úr Hveragerði, en þeir ætla sér hlaupa hvorki meira minna en 106 kílómetra. Einar Bárðarson skipuleggjandi hlaupsins var á línunni.

Frumflutt

6. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,