Síðdegisútvarpið

Íslenskur ævintýramaður,leigubílamarkaðurinn og H dagurinn

Síðdegisútvarpið 26. maí

H dagurinn er í dag.

Við settum okkur í samband við bæjarstjórann í Grundarfirði hana Björgu Ágústsdóttur en það er mikill hugur í bæjarstjórn Grundafjarðarbæjar og íbúum þar því er stefnt á byggja upp glæsilegan miðbæ á staðnum.

Í síðustu viku blossaði eins og svo oft upp umræða um leigubílamarkaðinn á Íslandi þegar Bergþór Ólafsson þingmaður Miðflokksins sagði frá því hvernig erlendur leigubílstjóri á Keflavíkurflugvelli ofrukkaði hann fyrir þjónustu þegar Bergþór þóttist vera erlendur ferðamaður. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík sagði í Morgunblaðinu í dag umræðan um leigubílamarkaðinn bæði einhliða og sorgleg. Með nýjum lögum um leigubifreiðaakstur sem tekin voru upp fyrir tveimur árum gat Hopp farið bjóða upp á leigubílaakstur. Sæunn kom til okkar.

Við tókum á móti ævintýramanninum Birni Páli Pálssyni sem fyrir nokkrum árum stofnaði ævintýraferðaskrifstofuna Crazy Puffin Adventures. Björn sagði okkur frá þessu áhugaverða fyrirtæki en einnig lífinu á Sri Lanka þar sem hann byggði sér nýverið hús.

Sigga Beinteins er bæjarlistamaður Kópavogs. Sigga kom til okkar í Síðdegisútvarpið.

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,