Síðdegisútvarpið

Silfursósa, andleysi í hönnun leikvalla, og mikið vatnsveður í Fjallabyggð

Veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn undanfarna daga, en það hefur verið einna verst fyrir norðan þar sem snjóaði á gesti tjaldsvæða, en mígrignir með tilheyrandi hættu á skriðuföllum. Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð var á línunni hjá okkur í dag.

Sverrir Norland rithöfundur skrifaði áhugaverða færslu á FB á dögunum þar sem hann tjáði sig um nýja leikvelli í borginni sem hann sagði alla nokkuð líka og hugmyndaauðgi vantaði og meiri áskoranir í tækjavali. Sverrir kom til okkar ásamt börnum sínum þeim Ölmu og Baltasar sem höfðu mikla skoðun á þessum málum.

Veitur halda sitt fyrsta nýsköpunarfestival þessa dagana þar sem hópur skapandi fólks tekst á við áskoranir í orku- og veitumálum. Viðgangsefnin snerta okkur öll, samfélagið í heild sinni og komandi kynslóðir. Sigríður Sigurðardóttir forstöðukona Stafrænnar umbreytingar hjá Veitum kom til okkar á eftir og segir okkur betur frá.

Stefnt er á baðstaður­inn Laug­ar­ás Lagoon í Bisk­upstung­um verði opnaður upp úr miðju sumri. Bryndís Björnsdóttir hjá Laugarás Lagoon kom til okkar á eftir og sagði okkur frá þessu risa verkefni.

Jaxl er stoltur silfurverðlaunahafi í Evrópukeppni hot sósa, European Hot Sauce Awards. Hjónin Gréta Mjöll Samúelsdóttir og Óðinn William Lefever hafa áður sagt okkur frá tilurð hot sósanna hér í Síðdegisútvarpinu en við ætlum hringja austur á Djúpavog af þessu tilefni og heyra hljóðið í Óðni.

Pílu og veitingastaðurinn Skor flytur starfsemi sína úr Kolastræti eftir áralangar deildur við íbúa í nærliggjandi húsum. Nýji staðurinn verður skammt frá en við ætlum heyra í Braga Ægissyni framkvæmdastjóra Skor og fengum hann til segja okkur af þessu máli.

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,