Síðdegisútvarpið

Mótmæli, hvítur himinn, eiturefni í umfhverfi og fréttir frá Spáni

Fjölmenn mótmæli gegn meintum einræðistilburðum Bandaríkjaforseta voru haldin víða um landið á laugardag meðan umfangsmikil hersýning var haldin í höfuðborginni. Ein þeirra sem mótmæltu í New York var Sigríður Benediktsdóttir hagfræðingur sem kennir við Columbia háskóla, og hún kom til okkar fara yfir ástandið vestanhafs.

Himininn hefur verið hvítur í veðurblíðunni undanfarið, þrátt fyrir það ætti heita heiðskýrt. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur útskýrði fyrir okkur hvað veldur.

Svo heyrðum við í Jóhanni Hlíðar á Spáni, sem sagði okkur frá grófri spillingu í pólitíkinni, hitabylgju og afar sérstöku morðmál á norður-Spáni.

Lyfja setti af stað svokallaða vöggugjöf á dögunum, þar sem foreldrar tilvonandi og núverandi geta fengið frían pakka með ýmsum nauðsynjavörum fyrir börn. Þetta var gert í samstarfi við Unu Emilsdóttir sérnámslækni í atvinnu- og umhverfislæknisfræði en hún sérhæfir sig í draga úr notkun á óæskilegum efnum, sérstaklega þegar kemur börnum.

Svo heyrðum við í Helga okkar Björns sem stígur á stokk ásamt karlakórnum Fóstbræðrum í tívolí á þjóðhátíðardaginn á morgun.

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,