Milljarðar hafa farið í uppbyggingu skíðasvæða á höfuðborgarsvæðinu – en brekkum hefur samt fækkað. Skálafell er lokað, þrengsli aukast í Bláfjöllum og aðgengi versnar. Spurningin er einföld: er verið að nýta fjármagnið rétt – eða er skíðaíþróttin að færast frá almenningi? Þetta kemur fram í aðsendri grein eftir Guðmund Guðjónsson, formann skíðadeildar KR í Morgunblaðinu í gær. Guðmundur kom til okkar í dag.
Fjármálaráðherra kynnti í haust frumvarp um breytingar á réttindum og skyldum opinberra starfsmanna, sem fela meðal annars í sér afnám áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar. Þau Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands stungu niður penna á dögunum í tilefni af þessu frumvarpi og þau eru ekki hrifin. Þau Sonja Ýr og Magnús Þór komu til okkar.
Í ár hefði Melavöllurinn í Reykjavík orðið 100 ára en hann er horfinn af sjónarsviðinu fyrir þó nokkru síðan. Þar standa nú Þjóðarbókhlaðan og Edda, hús íslenskra fræða. Í fyrra kviknaði sú hugmynd að hóa saman gömlum knattspyrnumönnum sem spiluðu á vellinum sælla minninga. Og nú á að endurtaka leikinn. Halldór Einarsson, Henson, kom til okkar og sagði okkur betur frá.
Tilkynnt hefur verið um komu skoska tónlistarmannsins David Byrne í sumar en hann mun halda tónleika í lok júlí í Laugardalshöllinni. Af því tilefni leituðum við til Árna Matthíassonar sem veit ansi margt um tónlistarmanninn David Byrne.
Það hefur vakið töluverða umræðu að starfsfólk Landspítalans fær ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðar –ákvörðun sem sumum þykir segja sitt um forgangsröðun í kerfinu. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur gagnrýnt þetta og spyr hvort ekki hefði verið nær að skera annars staðar niður og leyfa starfsfólki að njóta smá viðurkenningar um páskana. Við heyrðum í Ragnari Frey í Síðdegisútvarpinu.
Og eins og venjulega annan hvern þriðjudag fengum við til okkar sjónvarpsframleiðandann Ragnar Eyþórsson til að benda okkur á nýtt sjónvarpsefni sem við ættum kannski að gefa gaum. Og framundan eru páskarnir þar sem nægur tími gefst til þess að liggja yfir góðu efni.
Þau Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson litu við hjá okkur í lok þáttar en þau stýra Torginu í kvöld á RÚV. Þar á að taka umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi viðræður við ESB.