Síðdegisútvarpið

Stöð 2, Brian Wilson, bílastæðaokur og hundar á listasafni

Á starfsmannafundi Sýnar miðla í vikunni kom fram Stöð 2 myndi heyra sögunni til og Sýn yrði helsta vörumerki miðlanna út á við. Í ljósi sögu þessa þetta vörumerkis, Stöðvar 2, þá flaug okkur í hug ræða við Höllu Helgadóttur framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, um þessar vendingar.

Líkt og við sögðum frá hér í beinni útsendingu í gær, þá lést tónlistarmaðurinn Brian Wilson sem helst var þekktur sem driffjöður hljómsveitarinnar Beach Boys í gær. Wilson á marga aðdáendur hér á landi og einn þeirra er Ingimar Karl Helgason kennari og fyrrum fréttamaður. Hann setti okkur aðeins inn í snilli þessa dáða tónlistarmanns sem heimurinn kvaddi í gær.

Neytendasamtökin telja bílastæðafyrirtæki hafa framið víðtæk brot í tengslum við gjaldskyld bílastæði og innheimtu á svokölluðum vangreiðslugjöldum. Þau telja álagningu þeirra í raun dulbúna innheimtu. Breki Karlsson formaður samtakanna kom til okkar.

Viðskiptaráð Íslands hefur kvartað undan aðstoð hins opinbera við óhagnaðardrifin leigufélög til Eftirlitsstofnunar EFTA en ráðið telur þessa aðstoð ólögmæta og brjóta gegn ákvæðum EES-samningsins. Þroskahjálp rekur húsbyggingarsjóð sem byggir íbúðir fyrir fatlað fólk og hefur það markmiði fólk með fötlun lifi við þau sjálfsögðu mannréttindi eiga þak yfir höfuðið. Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar furðar sig á kvörtun viðskiptaráðs og kom til okkar í spjall.

Lista­safnið á Ak­ur­eyri býður hunda og eig­end­ur þeirra vel­komna á sér­stakt hunda­kvöld í kvöld og er ókeyp­is inn fyr­ir eig­end­ur í fylgd hunda. Sigríður Örvarsdóttir safnsstjóri var á línunni.

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,