Síðdegisútvarpið

Stýrivaxtahækkun, týndu strákarnir og kjarnasamfélög

Í kvöld fara Íslensku tónlistarverðlaunin fram í Hörpu og hefst útsending þeirra á RÚV kl. 19:45. Einar Bárðarson, sem er stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar Íslands og fyrrum framkvæmdastjóri ÍTV, bendir á í grein sem hann skrifar hlúa þurfi grunninum þegar kemur tónlistarsköpun og notar Laufeyju sem dæmi. Þegar hún tók við Grammy-verðlaunum sínum fyrr á árinu minnti hún sérstaklega á upprunann tónlistarkennsluna og tónlistarskólana. Einar kom til okkar.

Gervigreind er farin hafa þó nokkur áhrif á vinnumarkaðinn –en hversu langt nær hún þegar kemur ráðningum? Erum við á leiðinni í átt sjálfvirkum ráðningum eða mun mannlegi þátturinn áfram skipta sköpum? Kristján Kristjánsson frá 50skills kom til okkar.

Reykjavíkurborg auglýsir eftir tilnefningum til Mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2026. Markmið mannréttindaverðlaunanna er vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt. En hverja tilnefna? Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður Mannréttindaráðs sagði okkur allt um þetta.

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í dag og gagnrýni lætur ekki á sér standa. Formaður VR segir launafólk fast í vítahring þar sem hærri vextir bitni verst á heimilunum og forsendur kjarasamninga séu bresta. Við heyrðum í Höllu Gunnarsdóttur formanni VR í þættinum.

Hvernig viljum við búa í framtíðinni –og getum við hugsað húsnæðismál á annan hátt en við eigum venjast? Svokölluð kjarnasamfélög, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, hagkvæmni og sterkari tengsl milli nágranna hljómar heillandi en hugmyndirnar verða kynntar á húsnæðisfundi í Ráðhúsinu á föstudag. Þórhildur Bryndís Guðmundsdóttir, arkitekt hefur skoðað þessi mál og hún kom til okkar.

Týndu Strákarnir er hlaðvarp sem fjallar um kerfið, veggina og afleiðingarnar. Þeir Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsson ræða þar við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur þeirra og fagfólk sem vinnur innan þess og rekst á hindranir. Í dag kom svo út skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann á Stuðlum þar sem sonur Jóns lést. Skýrslan dregur fram margt sem fór úrskeiðis í brunavörnum á Stuðlum. Brunahólfun var ekki virk og aflæsingarbúnaður á flóttaleiðum virkjaðist ekki. Skýrsluhöfundar draga fram marga annmarka á húsnæðinu, eftirliti með því og brunavörnum. Við ræddum við þá Steindór og Jón.

Birt

18. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,