Hugrún Hannesdóttir Diego, fréttamaður, sagði af nýjustu tíðindum af falli Play.
Í kjölfar gjaldþrots Play í gær vakna ýmsar spurningar t.d. um fjárfestingar lífeyrissjóða í flugfélögum en almennt er talið að um sé að ræða áhættufjárfestingu. Er það ásættanlega áhætta fyrir lífeyrissjóð að eiga í flugfélögum? Við fengum Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa, til að ræða þessi mál við okkur.
Alþjóðleg ráðstefna um hamp og framtíð grænna lausna í Reykjavík verður haldin Iðnó dagana 1.–3. október. Miðpunktur alþjóðlegrar umræðu um hamp og kannabis. Þar koma saman helstu sérfræðingar í vísindum, atvinnulífi, nýsköpun og menningu í notkun hampplöntunnar til að ræða hvernig þessi forna planta gæti orðið lykillinn að grænni framtíð Íslands. Steinunn Ólína Þorsteinsdótir, kynnir ráðstefnunar og Þórunn Jónsdóttir, skipuleggjandi ráðstefnunar komu í Síðdegisútvarpið.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sagði okkur af Minningarsjóði Bryndísar Klöru en minningarsjóðurinn er kominn með nær um helminginn í söfnunina fyrir Bryndísarhlíð með stuðningi fjölda fyrirtækja. Í gær fengu þau afhent 15 milljónir króna sem er afrakstur á sölu á Kærleikskristal. Og er sjóðurinn kominn með augastað á húsnæði fyrir Bryndísarhlíð.
Bæjarráð Reykjanesbæjar telur að gríðarleg skerðing verði á þjónustu Strætó við íbúa Reykjanesbæjar um næstu áramót þegar stoppistöðvum á leið 55 mun fækka úr átta í tvær í sveitarfélaginu ef áætlanir Vegagerðarinnar ná fram að ganga um nýtt leiðakerfi landsbyggðarstrætó. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum síðasta fimmtudag og Víkurfréttir greina frá í dag. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður Bæjarráðs Reykjanesbæjar, var á línunni.
Í nýjum sjónvarpsþáttum sem hefja göngu sína í kvöld á RÚV fara Eva María Jónsdóttir og Pétur Blöndal í rannsóknarleiðangur til að draga fram þræði ljóðsins í íslensku samfélagi. Þau spyrja spurninga eins og hvort ljóð hafi þýðingu í tilverunni og hvort þau geti breytt lífi fólks. Þau skoða þætti sem ná yfir allt frá leikskólum til elliheimila, vöggu til grafar, ást til haturs, tónlist til myndlistar, göldrum til vísinda, rímum til rapps og landnámi til þessa dags. 2015