Síðdegisútvarpið

Mótmæli, Latibær á fertugsaldri, skiptinemar og ruslatunnur í ranghölum

Mótmæli sem brutust út í los Angeles eftir aðgerðir innflytjendastofnunar Bandaríkjanna virtust í rénun í gærkvöldi. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fór yfir stöðuna með okkur.

Það bárust fréttir af því rafmagn hefði farið af á stórum hluta Suðurlands i morgun eftir bilun í Hvolsvallarlínu, en rafmagnsleysið var umfangsmikið þar sem ekki er hringtenging rafmagns um Suðurland. Við heyrðum í Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum sem sagði ástandið óásættanlegt.

Síðustu ár hefur sorpílátum fjölgað um land allt, ekki síst vegna aukinnar flokkunar. Það sem á stuðla sjálfbærni og betra umhverfi getur þó skapað vandamál ef ílátin eru illa staðsett eða aðgengi þeirra erfitt bæði fyrir notendur og starfsfólk í sorphirðu. hefur starfsfólk Terra sett af stað átak í þeim tilgangi vekja okkur öll til umhugsunar um það það er fólk sem sér um tæma tunnurnar og því mikilvægt aðgengi gott og hreinlæti til fyrirmyndar. Við heyrðum í Önnu Jónu Kjartansdóttur öryggis og gæðastjóra hjá Terra

Latibær fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni hefur verið blásið til heljarinnar heilsuátaks undir nafninu íþróttanammi sem miðar því auka neyslu barna á ávöxtum og grænmeti. Íþróttaálfurinn Magnús Scheving kom til okkar.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Norður-Írum í vináttulandsleik í Belfast á eftir. Eftir sigur á skotum fyrir helgi gæti íslenska liðinu tekist vinna tvo leiki í röð sem hefur ekki gerst í háa herrans tíð. Við fórum yfir stöðuna með Almari Ormarssyni íþróttafréttamanni.

Skiptinemasamtökin AFS leita fósturfjölskyldum fyrir18 nemendur sem koma hingað til lands 15 ágúst nk. og eru hér ýmist í 3, 5, eða 10 mánuði. Við fengum til okkar Ingunni Ólafsdóttur sem er framkvæmdastjóri AFS samtakanna

Frumflutt

10. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,