Síðdegisútvarpið

Rabbarbari, kvennaár, Hafdís og heyr heyr!

Rabbarbarinn sprettur sem aldrei fyrr í görðum landsmanna sem margir hverjir vita ekkert hvað þeir eiga gera við alla uppskeruna. Við slógum á þráðinn til Bjarkar Bjarnadóttur hjá rabbarbarafélaginu sem veit allt um þessa plöntu.

SOS Barnaþorpin auglýstu á mánudaginn eftir Hafdísi nokkurri sem hafði verið styrktaraðili konu af ind­versk­um upp­runa sem ólst upp í SOS Barnaþorp­inu í Green­fields á Indlandi en er á leið til landsins og langaði hitta konuna Hafdísi sem styrkti hana á sínum tíma. Hans Steinar Bjarnason upp­lýs­inga­full­trúi SOS Barnaþorp­anna á Íslandi kom til okkar með söguna en Hafdís mun vera fundin.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra byrjar í dag og stendur út næstu helgi. Fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023 en standa öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra hátíðinni. Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Hinsegin hátíðarinnar var á línunni hjá okkur og fór yfir það helsta.

Snorri Másson þingmaður miðflokksins var meðal þeirra sem kvaddi sér hljóðs á alþingi í dag, í dagskrárliðnum störf þingsins Þar vakti hann nokkra athygli fyrir umtalsefni sitt, en hann vildi ræða þá hefð kalla heyr heyr í þingsal séu menn sammála ræðumanni. Við heyrðum í Snorra um þetta hitamál.

Felix Bergsson sat sinn síðasta fund hjá stýrihóp Eurovision-söngvakeppninnar á mánudaginn. Hann kom til okkar til ræða þess starfslok sín og leit yfir farinn veg með okkur.

Fjölmörg samtök taka höndum saman og lýsa því yfir árið 2025 Kvennaár ár þar sem baráttan gegn kynbundnu ofbeldi og vanmati á framlagi kvenna og kvára nær nýjum hæðum en líka ár þar sem við komum saman í krafti samstöðu og dönsum, öskrum og syngjum. Þetta segir inná kvennaar.is en annað kvöld á fagna í Hljómskálagarðinum með heljarinnar tónleikum. Inga Auðbjörg Straumland er verkefnistýra Kvennaárs 2025. Hún kom til okkar í lok þáttar.

Frumflutt

18. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,