
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Mikil umræða um niðurstöður PISA könnunarinnar hefur verið um stöðu íslenskra nemenda. Umræðan hefur að mestu verið neikvæð en við ætlum að kynna okkur hugsanlegar lausnir frekar en að einblína á vandamálin. „Lesum hraðar“ er nafn á þjálfunarnámskeiði fyrir börn í 1.-6. bekk sem þurfa hjálp í lestri. Þetta mun vera verkfæri fyrir foreldra til að nota heima, sem oftast eru úrræðalausir þegar lestrarnámið gengur illa. Sá sem stendur að þessu er Kolbeinn Sigurjónsson, lesblinduráðgjafi hjá Betra námi. Hann kom til okkar.
Mörg okkar muna eflaust eftir því þegar umræðan um ósonlagið og ósongatið var áberandi og náði ákveðnu hámarki undir síðustu aldarmót. Við höfðum öll sem mannkyn miklar áhyggjur af versnandi þróun og hárlakkið var mikið í umræðunni sem dæmi um efni sem hefði slæm áhrif. Nú berast hins vegar jákvæð tíðindi, því gatið í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu hefur sjaldan verið minna en undanfarin tvö ár og bendir margt til þess að ósonlagið sé á batavegi. En hvað er ósonlagið eiginlega, hvers vegna myndaðist þetta gat á sínum tíma og hvað segja þessar nýju mælingar okkur? Til að fara yfir það með okkur kom til okkar Ágúst Kvaran sem er prófessor Emiritus í eðlisefnafræði .
Félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu hefur útbúið heilsueflandi verkefni sem styður við forvarnir, sjálfstæði og betri líðan eldri íbúa – með einföldum og hagkvæmum hætti sem þau kalla Hreyfidagatal. Hreyfidagatalið er þróað af sjúkraþjálfurunum Hildi Aðalbjörgu Ingadóttur og Svandísi Björk Guðmundsdóttur fyrir hönd félagsins og nýtur stuðnings Landssambands eldri borgara, Félags sjúkraþjálfara og Farsælli öldrun – þekkingarmiðstöð. Okkar maður, Ólafur Páll Gunnarsson, kíkti fyrir okkur á þær Hildi og Svandísi.
Nú er að fara af stað verkefnið Málæði sem er ætlað nemendum í 8. til 10. bekk og hvetur þau til að skapa á íslensku með því að semja texta og lög. Það sem gerir verkefnið sérstaklega spennandi er að unga fólkið fær tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram með þekktu tónlistarfólki og afraksturinn endar ekki í skúffunni heldur fyrir framan áhorfendur. Harpa Rut Hilmarsdóttir er sú sem allt veit um verkefnið og hún kom til okkar ásamt ungri stúlku Emelíu Írisi Benediktsdóttur sem hefur tvisvar tekið þátt í verkefninu.
Sífellt fleiri kennarar og skólastarfsmenn sækja sér endurmenntun á netinu og ein stærsta ráðstefnan sem haldin er hér á landi er Utís Online sem haldin verður næstu tvo daga. Þar koma saman kennarar, stjórnendur og starfsfólk af öllum skólastigum í tveggja daga netviðburði sem býður upp á 20 alþjóðlega fyrirlestra, alla textaða á íslensku, innsýn í íslenskt skólastarf og tækifæri til að ræða saman og læra hvert af öðru, hvar sem fólk er statt á landinu. Björn Kristjánsson er framkvæmdastjóri Utís Online hann sagði okkur betur frá í þættinum í dag.
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar sem meðal annars er nýtt við þróun gervigreindar og snjalltækja, hefur lokið 18 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, jafnvirði um 2 milljarða króna. Við ræddum framtíðar áætlanir fyrirtækisins og framtíð gervigreindarinnar við Dr. Finn Pind sem er stofnandi og framkvæmdastjóri Treble Technologies.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.