Síðdegisútvarpið

Björn Ingi um pólitíkina, þú ert umferðin og Jólaboðið

Þú ert umferðin Þróun samgangna á höfuðborgarsvæðinu var yfirskrift morgunfundar Vegagerðarinnar, sem haldinn var fyrr í dag. Til umfjöllunar var meðal annars þróun byggðar og samgangna síðustu ár og hvar helsta uppbygging og fólksfjölgun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu. Einnig var skoðaður ferðatími á annatímum árdegis og síðdegis á höfuðborgarsvæðinu og skðaðar voru nokkrar leiðir milli íbúasvæða og helstu atvinnu- og menntasvæða. Við fengum til okkar frá Vegagerðinni Bryndísi Friðriksdóttir svæðisstjóra höfuðborgarsvæðisins og Ceciliíu Þórðardóttur samgönguverkfræðing og verkefnastjóra hjá Vegagerðinni.

Leikararnir Hallgrímur Ólafsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir fara með hlutverk í Jólaboðinu sem hefur heillað áhorfendur Þjóðleikhússins á aðventunni á fyrri leikárum. Í verkinu sem er leikstýrt af Gísla Erni Garðarssyni er fylgst með sögu íslenskrar fjölskyldu með því gægjast inn í stofu á aðfangadagskvöld, reglulega, á einnar aldar tímabili. Halli og Lolla komu til okkar.

Matargjafir ganga í endurnýjun lífdaga fyrir jólin en Sigrún Steinarsdóttir sem heldur uti facebook síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni hefur ákveðið halda verkefninu áfram fyrir jólin. Við heyrðum í Sigrúnu.

Eins og margir höfum við í Síðdegisútvarpinu verið með gervigreind á heilanum undanförnu. er komið því fjalla um nýsköpunar- og gervigreyndarráðstefnu Flæði framtíðar sem haldin verður á vegum Fab lab Suðurnes, í Reykjanesbæ á morgun. Þar verður fjallað um áhrif og möguleika gervigreindar í þróun og eflingu nýsköpunar, sjálfvirkni og tæknimenntunar. Vilhjálmur Magnússon er höfuðpaur ráðstefnunnar og hann mætti til okkar.

En við byrjuðum á pólitíkinni og til okkar kom Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans.

Frumflutt

14. nóv. 2024

Aðgengilegt til

14. nóv. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,